Úr fyrirtækjaskrá


Á næstunni

Engir skráðir viðburðir á næstunni

FabLab-smiðja á Sauðarkróki
Föstudagur, 29. Janúar 2010 08:32

lykklabor_appel

 

Svokölluð FabLab smiðja verður sett upp á Sauðárkróki, en þetta er samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Samningar um verkefnið verða undirritaðir á næstu dögum.

FabLab er stytting á Fabrication Laboratory og verður stofan opin frumkvöðlum sem vilja þróa góðar hugmyndir, en hefur til þessa skort aðstöðu til þess. Sambærileg smiðja var sett á stofn í Vestmannaeyjum fyrir tveimur árum og er reynslan af henni mög góð.