Úr fyrirtækjaskrá
Sveitarfélög
Á næstunni
Engir skráðir viðburðir á næstunniHáskólinn á Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Menntaskólinn á Akureyri
Tónlistarskólinn á Akureyri
RHA
FSHA
Símey
Tölvuskólinn Þekking
Menntasmiðjan á Akureyri
Samgöngur:
Flugfélagið
Iceland Express
Sæfari
Almannavarnir:
Slökkvilið Akureyrar
Lögreglan
Landsbjörg
Sjúkrahús:
FSA
| Gasvinnsla á Akureyri ný auðlind |
| Föstudagur, 29. Janúar 2010 08:27 |
|
Möguleikar á gasvinnslu á sorphaugum Akureyrarbæjar á Glerárdal, er lykillinn að því að hafinn er undirbúningur að byggingu koltrefjaverksmiðju á Akureyri. Í gær var undirritaður rammasamningur þess efnis að kanna á næstu tveimur árum hvort ráðist verður í byggingu verksmiðjunnar á Akureyri. Hér yrði um margra milljarða verkefni að ræða, árs framleiðslugeta verksmiðjunnar yrði um þúsund tonn og starfsmenn um áttatíu. Það voru Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Strokks ehf. og Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri sem undirrituðu samninginn, en Strokkur er helmings eigandi hlutafjár í aflþynnuverksmiðju Becromal í Krossanesi. Hugmyndin er að möguleg koltrefjaverksmiðja verði við Rangárvelli ofan Akureyrar. |

